Þjófnaður er helsta tekjulind ISIS Samúel Karl Ólason skrifar 8. október 2015 14:49 ISIS hefur sett á laggirnar skóla í Sýrlandi og Írak. Hryðjuverkasamtökin Íslamskt ríki hafa lengi verið talin vel sett fjárhagslega. Samtökin hafa hagnast vel á sölu olíu og fornminja og á lausnargjaldi vegna gísla. Þá stæra samtökin sig af því á samfélagsmiðlum að hafa byggt upp embættismannakerfi, lögreglu og stóran þjónustugeira. Skjöl sem nýverið litu dagsins ljós gefa þó áður óþekkta mynd af fjármálum ISIS og svo virðist sem að samtökin afli mestra tekna á því að beinlínis ræna það fólk sem býr á yfirráðasvæði þeirra. Skjölin, sem sjá má hér, eru frá héraðinu Deir Ezzor. Það hérað er í austurhluta Sýrland og má þar finna mikið af olíu. Íslamska ríkið hefur stjórnað því svæði frá því í júlí í fyrra. Skjölin ná yfir einn mánuð eða frá 23. desember 2014 til 22. janúar 2015.Helstu tekjurnar af upptöku Á yfirliti yfir tekjur ISIS í héraðinu má sjá að heildartekjur héraðsins á þeim tíma voru rúmlega 8,4 milljónir dala. Sem hlutfall af heildartekjum voru sala á olíu og gasi 27,7 prósent. Tekjur af sölu rafmagns voru 3,9 prósent, skattar 23,7 prósent og svokölluð „upptaka“, e. confiscations, samsvarar heilum 44,7 prósentum af heildartekjum samtakanna. Skjölin voru gerð opinber af Aymenn al-Tamimi, sem starfar fyrir UK Middle East Forum sem hefur verið að vinna við landamæri Sýrlands. Hann segir margar ástæður fyrir því að fé og eignir fólk sé gert upptækt. Þar megi nefna að heimili íbúa sem hafa flúið eru rænd, sektir fyrir brot á lögum ISIS og eða um sé að ræða smyglaðar vörur sem hafa verið gerðar upptækar eins og áfengi og sígarettur. Í samtali við Vice News segir Tamimi til dæmis að ef eigendur fyrirtækja missa af bænum þrisvar sinnum í röð, séu fyrirtæki þeirra gerð upptæk. Þá sé líti út fyrir að vígamenn samtakanna ræni fólk við landamæri héraðsins.Stór hluti útgjalda í hernað Sé litið yfir heildarútgjöld ISIS, rúmar 5,5 milljónir dala, fara 19,8 prósent í rekstur herstöðva og 43,6 prósent í laun vígamanna. Samtals fara 63,4 prósent af útgjöldum ISIS í héraðinu í hernað. Þá fara 2,8 prósent í fjölmiðla, 10,4 prósent í lögreglu, 17,7 prósent í þjónustu og 5,7 prósent í lið sem er titlaður sem neyðarhjálp. Tamimi segir þessi skjöl gefa í skyn að tekjur samtakanna af sölu olíu séu ekki nærri því sem áður hefur verið talið. Fjölmiðlar ytra sögðu frá því í fyrrasumar að samtökin högnuðust um allt að þrjár milljónir dala á dag af sölu olíu. Hagnaður af sölu fornminja er ekki innifalinn í umræddum skjölum. Mið-Austurlönd Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Sjá meira
Hryðjuverkasamtökin Íslamskt ríki hafa lengi verið talin vel sett fjárhagslega. Samtökin hafa hagnast vel á sölu olíu og fornminja og á lausnargjaldi vegna gísla. Þá stæra samtökin sig af því á samfélagsmiðlum að hafa byggt upp embættismannakerfi, lögreglu og stóran þjónustugeira. Skjöl sem nýverið litu dagsins ljós gefa þó áður óþekkta mynd af fjármálum ISIS og svo virðist sem að samtökin afli mestra tekna á því að beinlínis ræna það fólk sem býr á yfirráðasvæði þeirra. Skjölin, sem sjá má hér, eru frá héraðinu Deir Ezzor. Það hérað er í austurhluta Sýrland og má þar finna mikið af olíu. Íslamska ríkið hefur stjórnað því svæði frá því í júlí í fyrra. Skjölin ná yfir einn mánuð eða frá 23. desember 2014 til 22. janúar 2015.Helstu tekjurnar af upptöku Á yfirliti yfir tekjur ISIS í héraðinu má sjá að heildartekjur héraðsins á þeim tíma voru rúmlega 8,4 milljónir dala. Sem hlutfall af heildartekjum voru sala á olíu og gasi 27,7 prósent. Tekjur af sölu rafmagns voru 3,9 prósent, skattar 23,7 prósent og svokölluð „upptaka“, e. confiscations, samsvarar heilum 44,7 prósentum af heildartekjum samtakanna. Skjölin voru gerð opinber af Aymenn al-Tamimi, sem starfar fyrir UK Middle East Forum sem hefur verið að vinna við landamæri Sýrlands. Hann segir margar ástæður fyrir því að fé og eignir fólk sé gert upptækt. Þar megi nefna að heimili íbúa sem hafa flúið eru rænd, sektir fyrir brot á lögum ISIS og eða um sé að ræða smyglaðar vörur sem hafa verið gerðar upptækar eins og áfengi og sígarettur. Í samtali við Vice News segir Tamimi til dæmis að ef eigendur fyrirtækja missa af bænum þrisvar sinnum í röð, séu fyrirtæki þeirra gerð upptæk. Þá sé líti út fyrir að vígamenn samtakanna ræni fólk við landamæri héraðsins.Stór hluti útgjalda í hernað Sé litið yfir heildarútgjöld ISIS, rúmar 5,5 milljónir dala, fara 19,8 prósent í rekstur herstöðva og 43,6 prósent í laun vígamanna. Samtals fara 63,4 prósent af útgjöldum ISIS í héraðinu í hernað. Þá fara 2,8 prósent í fjölmiðla, 10,4 prósent í lögreglu, 17,7 prósent í þjónustu og 5,7 prósent í lið sem er titlaður sem neyðarhjálp. Tamimi segir þessi skjöl gefa í skyn að tekjur samtakanna af sölu olíu séu ekki nærri því sem áður hefur verið talið. Fjölmiðlar ytra sögðu frá því í fyrrasumar að samtökin högnuðust um allt að þrjár milljónir dala á dag af sölu olíu. Hagnaður af sölu fornminja er ekki innifalinn í umræddum skjölum.
Mið-Austurlönd Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Sjá meira